Raunfærnimat
| Hefurðu starfað við iðngrein án þess að hafa lokið sveinsprófi? Því ekki að kynna sér þá möguleika sem raunfærnimat í iðngrein hefur upp á að bjóða? Skilyrði fyrir raunfærnimati í iðngrein eru að minnsta kosti 5 ára staðfestur vinnutími í greininni og að þú sért að minnsta kosti 25 ára. Hafðu samband við Fræðsluskrifstofu rafiðnaðarins eða IÐUNA fræðslusetur, til að fá frekari upplýsingar um hvort raunfærnimat sé tækifæri fyrir þig. | |
|
Raunfærnimat gengur út á að staðfesta og meta raunverulega færni þína í skilgreindum verkum eða námsefni án tillits til þess hvernig eða hvar þú hefur náð færninni. |
|
|
|
|
Þegar rætt er um raunfærni eru eftirfarandi skilgreiningar oft notaðar: |
|
|
|
|
|
|
|
| Sjá bækling Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um raunfærnimat |
Þú ert hér:
RaunfærnimatLeit
Toppmynd











