Beint á leiðarkerfi vefsins

Reynsluráðning

Fyrirtæki eða stofnun geta gert samning um reynsluráðningu. Skilyrði fyrir gerð samnings um reynsluráðningu eru meðal annars að:
 
  • Vinnumálastofnun geri samning um reynsluráðningu við fyrirtæki eða stofnun.
  • samningurinn leiði til þess að starfsmönnum fjölgi. 
  • samningurinn sé bæði um reynsluráðningu og hefðbundna ráðningu í að minnsta kosti jafn langan tíma og reynsluráðningin.
  • samningurinn sé að hámarki til sex mánaða og óheimilt að framlengja hann vegna sama atvinnuleitanda nema þú hafir skerta starfsorku og nauðsynlegt sé að veita þér lengri tíma til endurhæfingar að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar.
Ef þú færð greiddar atvinnuleysisbætur og þér sýnist að þetta úrræði komi til greina fyrir þig þá skaltu óska eftir ráðleggingum og aðstoð frá ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Mundir þú vilja leita að fyrirtæki eða stofnun til að gera samning um reynsluráðningu? Ræddu við ráðgjafa áður en þú ferð að leita. 
 
Samningur um reynsluráðningu
4. grein reglugerðar 12/2009 um reynsluráðningu
Sjá nánari upplýsingar um reynsluráðningu á vefsíðu Vinnumálastofnunar
 
Hafa samband við þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar


Þú ert hér:

Önnur úrræði » Reynsluráðning

Toppmynd

Menntatorg

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré