Beint á leiðarkerfi vefsins

Námsúrræði

Til að þú getir stundað nám eða sótt námskeið jafnframt því að vera á atvinnuleysisbótum þarftu að uppfylla ákveðin skilyrði og ef svo er geturðu gert námssamning við Vinnumálastofnun. Ef námssamningurinn er um að þú stundir starfstengt nám eða námskeið sem Vinnumálastofnun viðurkennir sem vinnumarkaðsúrræði áttu líklega rétt á styrk frá Vinnumálastofnun. Þá ber að hafa í huga að:
 
  • skilyrði fyrir veitingu styrks er að ráðgjafi Vinnumálastofnunar meti að hið starfstengda nám eða námskeið muni nýtast þér beint við atvinnuleit og til þess fallið að þú náir árangri að finna starf.
  • styrkurinn getur að hámarki numið 50% af námskeiðsgjaldi en þó aldrei hærri en 70.000 kr. á önn eða á hverjum þrettán vikum. 
Þá má líka nefna að fjölmörg stéttarfélög bjóða félagsmönnum sínum upp á ýmsa styrki vegna náms og námsskeiða. Hafðu samband við stéttarfélagið þitt og athugaðu vel hvort þú eigir ekki rétt á námstyrki frá stéttarfélaginu þínu.  
 
Hvaða nám og námskeið er hægt að sækja samhliða atvinnuleysisbótum?
Listi yfir fræðslusjóði stéttarfélaga
 
Hafa samband við þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar

Þú ert hér:

Námsúrræði

Toppmynd

Menntatorg

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré