Beint á leiðarkerfi vefsins

Náms- og starfsráðgjafar

Í starfi sínu hefur náms- og starfsráðgjafi það að meginmarkmiði að stuðla að velferð einstaklinga. Með því að ræða við náms- og starfsráðgjafa gefst tækifæri til að skoða og meta eigin stöðu, til dæmis áhuga og hæfni, átta sig á hvaða möguleikar eru í boði og gera áætlun um hvert skal stefna. Góð hvatning getur skipt sköpum þegar hefjast skal handa við ný verkefni.

 

Náms- og starfsráðgjafi getur meðal annars veitt:

  • upplýsingar um nám og störf.
  • aðstoð til að auðvelda ákvarðanatöku vegna náms- og/eða starfsvals.
  • aðstoð við að kanna áhugasvið, færni og persónulegra styrkleika með tilliti til náms og starfa.
  • aðstoð við mat á möguleikum til náms og starfa.
  • aðstoð við að takast á við hindranir í námi.
  • aðstoð við að setja sér markmið og gera áætlun um nám eða starfsþróun.
  • leiðsögn um árangursrík vinnubrögð í námi t.d. glósugerð og prófundirbúning.
  • stuðning og hvatningu til símenntunar.
  • aðstoð við gerð ferilskráa (CV) og atvinnuumsókna.
  • aðstoð við að leita að áhugaverðu tómstundastarfi.
  • ráðgjöf um persónuleg málefni.
 
Til að panta viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa hjá þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar eða náms- og starfsráðgjafa hjá fræðslu- og símenntunarmiðstöðvunum - sjá hérna

Þú ert hér:

Náms- og starfsráðgjöf » Náms- og starfráðgjafar

Toppmynd

Menntatorg

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré