Beint á leiðarkerfi vefsins

Náms- og starfsráðgjöf

Ef þú færð greiddar atvinnuleysisbætur og ert í vafa hvaða nám eða námskeið geti hentað þér þá skaltu hafa samband við náms- og starfsráðgjafa svo þú getir áttað þig betur á eigin stöðu og þ.a.l. áttað þig á því hvaða möguleikar eru í boði.

Náms- og starfsráðgjafar veita fólki á öllum aldri ráðgjöf og upplýsingar til að auðvelda ákvarðanatöku vegna náms- og starfsvals. Einnig aðstoða þeir einstaklinga við að takast á við ýmis verkefni sem tengjast námi og starfsþróun.

Til að fá upplýsingar um hvar þú getur komist í viðtal hjá náms- og starfsráðgjafa þér að kostnaðarlausu, hafðu þá samband við náms- og starfsráðgjafa hjá þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar eða náms- og starfsráðgjafa hjá fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum - sjá hérna.

 

Þú ert hér:

Náms- og starfsráðgjöf

Toppmynd

Menntatorg

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Hamur fyrir sjónskerta Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré